Ljósafl
Ljósafl (L) (e. luminosity) er það magn ljóss og annarar rafsegulgeislunar sem sólstjarna geislar frá sér á sekúndu, þegar búið er að leiðrétta ljósgleypingu í efni milli stjarna (miðgeimsgleypingu). Ljósafl stjörnu fer eftir stærð hennar (radíus) og yfirborðshitastigi. Ljósafl mælist í wöttum eða sem margfeldi af ljósafli sólar (Lsól), um það bil 3,9 x 1026 W.
Ljósafl er tengt alrófsbirtustigi stjörnu (Mbol), samkvæmt jöfnunni
Mbol – 4,72 = 2,5 log(L/Lsól)
Ljósafl björtustu reginrisa getur verið meira en milljónfalt ljósafl sólar, en daufustu rauðu dvergstjörnurnar geta verið milljón sinnum daufari en sólin.
Ljósafl sólar sveiflast lotubundið um 0,1% vegna ellefu ára sólblettasveiflunnar. Að sama skapi sveiflast ljósafl annarra stjarna lotubundið, ýmist vegna sólbletta eða mismikils orkuflæðis frá yfirborðinu.
Tengt efni
Hvernig vitna skal í þessa grein
- Sævar Helgi Bragason (2010). Ljósafl. Stjörnufræðivefurinn. http://www.stjornuskodun.is/alheimurinn/ljosafl (sótt: DAGSETNING).