Fréttasafn

Headline list

Halastjarnan Catalina. Mynd: Damian Peach

29. Nov 2015 Fréttir : Halastjarnan Catalina á morgunhimninum

Í desember og janúar er hægt að sjá halastjörnuna Catalina klífa upp himininn á morgnana. Hún er dauf (5. birtustig) og nýtur sín því best með handsjónauka eða stjörnusjónauka.

Óríonítar

14. Nov 2015 Fréttir : Leoníta loftsteinadrífan nær hámarki 17.-18. nóvember

Hin árlega Leoníta loftsteinadrífa nær hámarki 17. og 18. nóvember. Aðstæður til að fylgjast með drífunni eru heppilegar því birtan af tunglinu truflar ekkert að þessu sinni.

Marstunglið Fóbos. Mynd: NASA/JPL-Caltech/University of Arizona

11. Nov 2015 Fréttir : Fóbos er hægt og rólega að tvístrast

Nýtt líkan vísindamanna hjá NASA benda til að stórar, langar sprungur á Fóbosi séu fyrstu merki þess að tunglið sé að sundrast vegna flóðkrafta.

Teikning af Oortsskýinu

11. Nov 2015 Fréttir : V774104: Fjarlægasta fyrirbæri sem fundist hefur í sólkerfinu

Stjörnufræðingar hafa komið auga á fjarlægasta fyrirbæri sem sést hefur í sólkerfinu okkar til þess: Hrollkaldan hnött, sennilega um 800 km í þvermál, sem er um 103 sinnum lengra frá sólinni en Jörðin - þrisvar sinnum fjarlægari en Plútó.

Táríti. Mynd: Berglind H. Helgadóttir

29. Oct 2015 Fréttir : Fylgstu með skærum en hægfara Tárítum

Í lok október og snemma í nóvember full ástæða til að hafa augun opin fyrir skærum en hægfara stjörnuhröpum úr Táríta loftsteinadrífunni

Nornakústurinn í Slörþokunni, NGC 6960

24. Sep 2015 Fréttir : Hubble skoðar Slörþokuna á ný

Wide Field Camera 3 myndavél Hubbles var beint að sprengistjörnuleifinni Slörþokunni og sýna myndirnar hvernig gasþræðirnir hafa þanist út á síðastliðnum árum.

Stjörnumyndunarsvæðið Messier 17. Mynd: ESO

23. Sep 2015 Fréttir : Messier 17 í öllu sínu veldi

ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, hefur birt nýja og stórglæsilega mynd af stjörnumyndunarsvæðinu Messier 17. Myndin er sú besta sem tekin hefur verið frá af þokunni í heild sinni.

Tunglmyrkvi, almyrkvi á tungli

20. Sep 2015 Fréttir : Almyrkvi á tungli aðfaranótt 28. september

Aðfaranótt mánudagsins 28. september verður almyrkvi á tungli sem sést að öllu leyti frá Íslandi ef veður leyfir.

Page 6 of 12