Dagbók stjörnufræðikennara – Kennsluvika 4 – vor 2014

Hér að neðan er óformleg lýsing á kennsluviku í stjörnufræði við Menntaskólann í Reykjavík vorið 2014. Öllum er frjálst að nota og breyta efni sem hér birtist. Mikið af þessu efni ætti að geta nýst við kennslu á efsta stigi og miðstigi grunnskóla.

Um dagbókina

Hér er sagt frá einni kennsluviku í stjörnufræði við Menntaskólann í Reykjavík veturinn 2013-2014.


Lauk við umfjöllun um sólina og hélt skyndipróf

Í þessari viku lauk ég við umfjöllun um sólina og hélt skyndipróf. Í dagbókarfærslu um kennsluviku 3 er að finna glærur og myndbönd sem tengjast sólinni.