Vísindaleikir um stjörnufræði

Vísindaleikir um stjörnufræði hafa verið þróaðir á leikskólanum Björtuhlíð í Reyjavík. Kennsluhugmyndirnar ættu einnig að gagnast á yngsta stigi grunnskóla og jafnvel á miðstigi. Verkefnið stendur ennþá yfir og síðar meir mun bætast við efni um stjörnumerkin og reikistjörnurnar.

M.Ed. ritgerð Sverris Guðmundssonar (júní 2013)

„Leikskólabörn fylgjast með gangi sólar og tungls. Þróunarstarf um stjörnufræði á leikskóla.“

Meistaraverkefnið var unnið í samstarfi við leikskólakennara á Björtuhlíð (áður Hamraborg) 2011-2013. Þróaðir voru vísindaleikir um stjörnufræði þar sem börnin fengu að skoða ýmis atriði sem tengjast sólinni og tunglinu. Ýmislegt annað sem tengist stjörnufræði var framkvæmt á leikskólanum á sama tíma. Fjöldi mynda er í ritgerðinni og aftarlega eru ýmsar hugmyndir sem gætu komið að gagni á leikskóla, yngsta stigi grunnskóla og jafnvel á miðstigi grunnskóla.

Stutt lýsing á framkvæmd Vísindaleikja um stjörnufræði

Hér eru ýmsar hugmyndir sem tengjast sólinni og tunglinu úr M.Ed. ritgerð Sverris Guðmundssonar. Þetta efni gæti nýst á leikskóla, yngsta stigi grunnskóla og jafnvel á miðstigi grunnskóla.

Geimur með stráknum

Hreyfimynd um strák og geimverur sem börnin á Björtuhlíð bjuggu til fyrir Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík haustið 2012. Nánari lýsing á vinnunni í kringum hreyfimyndina var búin til er að finna í M.Ed. ritgerð Sverris Guðmundssonar.