Tunglið árið 2017
Fullt tungl, nýtt tungl, „ofurmánar“ og sól- og tunglmyrkvar árið 2017
Hér er að finna upplýsingar um kvartilaskipti tunglsins — hvenær tunglið er nýtt, hálft vaxandi, fullt og hálft minnkandi – auk upplýsinga um stærstu fullu tungl ársins („ofurmána“) og sól- og tunglmyrkva árið 2017.
Overview
Tunglið snýst í kringum Jörðina á tæpum mánuði. Umferðartími tunglsins um Jörðina miðað við sólina er að meðaltali 29,53 dagar. Á þeim tíma gengur það í gegnum kvartilaskipti, þ.e. vex úr nýju tungli í fullt og minnkar þá úr fullu í nýtt. Vaxandi tungl sést alltaf á kvöldin en minnkandi tungl síðla nætur og á morgnana.
Kvartilaskipti tunglsins árið 2017 — Nýtt tungl og fullt tungl 2017
Nýtt tungl | kl. | Fyrsta kvartil | kl. | Fullt tungl | kl. | Síðasta kvartil | kl. | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
5. janúar | 19:47 | 12. janúar | 11:34 | 19. janúar |
22:14 | |||||
29. janúar |
00:07 | 4. febrúar |
04:19 | 11. febrúar |
00:33 | 18. febrúar |
19:33 | |||
26. febfrúar |
14:58 | 5. mars |
11:32 | 12. mars |
14:54 | 20. mars |
15:48 | |||
28. mars |
02:57 | 3. apríl |
18:39 | 11. apríl |
06:08 | 19. apríl |
09:57 | |||
26. apríl |
12:16 | 3. maí |
02:47 | 10. maí |
21:43 | 19. maí |
00:33 | |||
25. maí |
19:44 | 1. júní |
12:42 | 9. júní |
13:10 | 17. júní |
11:33 | |||
24. júní |
02:31 | 1. júlí |
00:51 | 9. júlí |
04:07 | 16. júlí |
19:26 | |||
23. júlí |
09:46 | 30. júlí |
15:23 | 7. ágúst |
18:11 | 15. ágúst |
01:15 | |||
21. ágúst |
18:30 | 29. ágúst |
08:13 | 6. september |
07:03 | 13. september |
06:25 | |||
20. september |
05:30 | 28. september |
02:54 | 5. október |
18:40 | 12. október |
12:25 | |||
19. október |
19:12 | 27. ágúst |
22:22 | 4. nóvember |
05:23 | 10. nóvember |
20:37 | |||
18. nóvember |
11:42 | 26. nóvember |
17:03 | 3. desember |
15:47 | 10. desember |
07:51 | |||
19. desember |
06:31 | 26. desember |
09:20 |
Taflan hér að ofan sýnir dagsetningu og tímasetningu kvartila tunglsins árið 2017 á íslenskum tíma.
Í myndskeiðinu hér undir sjást kvartilaskipti tunglsins og tunglvik árið 2017, séð frá norðurhveli Jarðar. Hver rammi samsvarar einni kjukkustund. Þegar tunglið snýst í kringum Jörðina sýnist það vagga. Þessi hreyfing er kölluð tunglvik og gerir okkur kleift að sjá 59% af yfirborði tunglsins. Ein helsta ástæða tunglviks er breytilegt sjónarhorn okkar vegna sporöskjulaga brautar tunglsins um Jörðina.
Að auki sýnir myndskeiðið staðsetningu tunglsins á braut sinni um Jörðina, lóðpunkta Jarðar og sólar (þá staði á Jörðinni þar sem tunglið og sólin eru í hvirfilpunkti), fjarlægð tunglsins frá Jörðinni í réttum hlutföllum og nöfn á gígum við skuggaskilin á tunglinu.
https://www.youtube.com/watch?v=gv65Orsh6LM
„Ofurmánar“ 2017 — Stærstu fullu tungl ársins (fullt tungl í jarðnánd)
Þegar full tungl verður innan við 90% af minnstu fjarlægð þess frá Jörðinni er talað um fullt tungl í jarðnánd eða „ofurmána“. Þá sýnist tunglið örlítið stærra og bjartara en þegar tunglið er fullt í jarðfirrð, þ.e. lengst frá Jörðinni. „Ofurmánar“ eru 30% bjartari og 14% breiðari en minnsta fulla tungl ársins. Munurinn á fullu meðaltungli og stærsta fulla tungli ársins er vart sjáanelegur
Fullt tungl | kl. | Fjarlægð (km) |
Þvermál á himni (bogamínútur) |
Hlutfallsleg fjarlægð |
Í jarðnánd | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|---|---|
12. janúar | 11:34 | 366.880 | 32,57 | 0,913 | 10. janúar | |
4. nóvember | 05:23 | 354.004 | 32,83 | 0,941 | 6. nóvember | |
3. desember | 15:47 | 357.987 | 33,38 | 0,990 | 4. desember | Stærsta fulla tungl ársins |
Hlutfallsleg fjarlægð lýsir fjarlægð tunglsins sem hlutfallinu milli jarðfirrðar (0,0) og jarðnándar (1,0).
Sól- og tunglmyrkvar 2017
Árið 2017 verða tveir sólmyrkvar og tveir tunglmyrkvar.
Sólmyrkvar 2017
-
Hringmyrkvi á sólu 26. febrúar: Sést Suður Ameríku, Suður Atlantshafi og suðurhluta Afríku, ekkert frá Íslandi
-
Almyrkvi á sólu 21. ágúst: Sést stranda á milli í Bandaríkjunum. 2% deildarmyrkvi í Reykjavík
Tunglmyrkvar 2017
-
Hálfskuggamyrkvi 11. febrúar: Sést í heild sinni frá Íslandi
-
Deildarmyrkvi 7. ágúst: Sést ekki frá Íslandi
Tengt efni
Heimildir
-
Fred Espenak. AstroPixels.com