Sólmyrkvagleraugu
Til að sem flestir geti orðið vitni að því einstaka og sjaldgæfa sjónarspili sem sólmyrkvi er þarf viðeigandi hlífðarbúnað. Öruggast er að nota sérútbúin sólmyrkvagleraugu. Slík gleraugu sía burt meira en 99% sólarljóssins og hleypa ekki í gegn skaðlegum útfjólubláum og innrauðum geislum. Aðrar aðferðir eru alls ekki jafn öruggar.
Sólmyrkvagleraugun eru því miður uppseld. Við reyndum að útvega nokkur þúsund stykki í viðbót en gleraugun eru uppseld um alla Evrópu. Það þýðir að við náum því miður ekki að afgreiða allar þær pantanir sem okkur bárust. Við biðjumst innilegrar afsökunar á því. Eftirspurnin var (og er) margfalt meiri en framboðið.
Í tilefni sólmyrkvans færa Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, Stjörnufræðivefurinn og Hótel Rangá, öllum grunnskólanemendum á Íslandi sólmyrkvagleraugu að gjöf svo hver nemandi og kennari geti fylgst með myrkvanum. Þetta verkefni er einstakt á heimsvísu.
Að horfa á sólina án viðeigandi hlífðarbúnaðar getur valdið varanlegum augnskaða og blindu í verstu tilvikum.
Sölustaðir
-
Verslanir Pennans/Eymundsson um land allt (gleraugun ættu að skila sér í allar verslanir um helgina eða strax eftir helgi)
-
Tölvun - Vestmannaeyjum
-
The Viking - Akureyri
-
Hótel Bláfell - Breiðdalsvík (berst í kaupfélagið eftir helgi)
-
Húsavík Cape Hotel - Húsavík
-
Hótel Rangá
Af hverju sólmyrkvagleraugu?
Sólmyrkvagleraugun eru úr hágæða silfurhúðaðri sólarfilmu sem síar burt skaðlega innrauða geisla og útfjólubátt ljós. Þau hleypa aðeins hundrað þúsunda hluta af sýnilega sólarljósinu í gegn svo öruggt er að skoða sólina með berum augum. Venjuleg sólgleraugu duga ekki til því þau hleypa of miklu ljósi í gegn (sólin er alltof björt) og einnig skaðlegum geislum.
Alls ekki nota 3D gleraugu eða venjuleg sólgleraugu!!
Gleraugun eru framleidd í Þýskalandi samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum. Filmurnar í gleraugunum eru fjölhúðaðar og því rispuþolnar en mikilvægt er að fara vel með þær. Gleraugun má alls ekki nota með öðrum sjóntækjum, hvorki handsjónaukum né stjörnusjónaukum.
Á bakhlið gleraugnanna eru notkunarleiðbeiningar á íslensku og ensku. Gleraugun eru ekki einnota og má nota hvenær sem er til að skoða stóra sólbletti og aðra sólmyrkva. Á næstu árum verða nokkrir deildarmyrkvar þar sem gleraugun munu koma að góðu gagni. Geymið því sólmyrkvagleraugun.
- Sævar Helgi Bragason