NGC 1049
NGC 1049 er kúluþyrping í um 630.000 ljósára fjarlægð frá jörðinni í stjörnumerkinu Ofninum. Hún tilheyrir Ofns-dvergvetrarbrautinni sem aftur tilheyrir Grenndarhópnum.
| Tegund: | Kúluþyrping |
| Stjörnulengd: |
02klst 39mín 52,5s |
| Stjörnubreidd: |
-34° 16′ 08" |
| Fjarlægð: |
630.000 ljósár |
| Sýndarbirtustig: |
+12,9 |
| Stjörnumerki: | Ofnnn |
| Önnur skráarnöfn: |
Hodge 3 |
Enski stjörnufræðingurinn John Herschel uppgötvaði þyrpinguna þann 19. október árið 1835.
Þótt þyrpingin sé fjarlæg er hægt að greina hana með meðalstórum áhugamannasjónaukum, á meðan dvergvetrarbrautin er nánast ósýnileg. Það var enda ekki fyrr en árið 1938 sem bandaríski stjörnufræðingurinn Harlow Shapley fann dvergvetrarbrautina.
