NGC 281
NGC 281 er rafað vetnisský í um 9.500 ljósára fjarlægð frá jörðinni stjörnumerkinu Kassíópeiu, í Perseifsarmi vetrarbrautarinnar. Í skýinu er lausþyrpingin IC 1590 og nokkrir Bok hnoðrar. NGC 281 er líka stundum kölluð Pacmanþokan vegna líkinda við tölvuleikjafígúruna frægu.
Tegund: | Ljómþoka |
Stjörnulengd: |
00klst 52mín 59,3s |
Stjörnubreidd: |
+56° 37′ 19" |
Fjarlægð: |
9.500 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
|
Stjörnumerki: | Kassíópeia |
Önnur skráarnöfn: |
IC 11, Sharpless 184 |
Bandaríski stjörnufræðingurinn Edward Emerson Barnard uppgötvaði þokuna í ágúst árið 1883.