NGC 3132
NGC 3132 (einnig þekkt sem Suðurhringþokan og Caldwell 74) er hringþoka í um 2.000 ljósára fjarlægð frá jörðinni í stjörnumerkinu Seglinu.
Tegund: | Hringþoka |
Stjörnulengd: |
10klst 07mín 01,7s |
Stjörnubreidd: |
-40° 26′ 11" |
Fjarlægð: |
2.000 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
+9,87 |
Stjörnumerki: | Seglið |
Önnur skráarnöfn: |
Enski stjörnufræðingurinn John Herschel uppgötvaði þokuna þann 2. mars árið 1835.
Á myndum af hringþokunni sjást tvær stjörnur mjög þétt saman. Önnur er af 10. birtustigi en hin af 16. Þokan varð til úr daufari stjörnunni sem nú er mjög heitur hvítur dvergur. Útfjólublátt ljós frá henni lýsir upp þokuna.
Þokan er stundum kölluð Átta-blossa þokan og Suðurhringþokan.