NGC 4526
NGC 4526 er linsulaga vetrarbraut í um 55 milljóna ljósára fjarlægð frá jörðinni í stjörnumerkinu Meyjunni.
| Tegund: | Linsulaga vetrarbraut |
| Stjörnulengd: |
12klst 34mín 3s |
| Stjörnubreidd: |
+07° 41′ 47" |
| Fjarlægð: |
55 milljón ljósár |
| Sýndarbirtustig: |
+10,7 |
| Stjörnumerki: | Meyjan |
| Önnur skráarnöfn: |
UGC 7718 |
Ensk-þýski stjörnufræðingurinn William Herschel uppgötvaði vetrarbrautina þann 13. apríl árið 1784.
Á myndinni sem sést hér til hliðar sést sprengistjarnan SN 1994D í NGC 4526. Mælingar á henni voru notaðar til að mæla útþenslu alheimsins, sem síðar kom í ljós að er sívaxandi.
