NGC 6302
NGC 6302, sem einnig er þekkt sem Paddan og Fiðrildið, er hringþoka í um 3.400 ljósára fjarlægð frá jörðinni í stjörnumerkinu Sporðdrekanum.
Tegund: | Hringþoka |
Stjörnulengd: |
17klst 13mín 44,2s |
Stjörnubreidd: |
-37° 06′ 15,94" |
Fjarlægð: |
3.400 ljósár |
Sýndarbirtustig: |
+7,1 |
Stjörnumerki: | Sporðdrekinn |
Önnur skráarnöfn: |
Skoski stjörnufræðingurinn James Dunlop uppgötvaði þyrpinguna þann 5. júní árið 1826 er hann var við stjörnuathuganir í Ástralíu.
Í miðju NGC 6302 er ein heitasta stjarna — hvítur dvergur — sem þekkist í vetrarbrautinni. Yfirborðshitastig hennar er yfir 200.000°C heitur. Það bendir til að stjarnan sem myndaði þokuna hafi verið nokkuð massamikil en massi hennar nú er um 0,64 sólmassar.
Hringþokan NGC 6302 er mjög flókin að uppbyggingu. Hún er stundaglaslaga og umlukin mjög þéttri gas- og rykskífu um miðbauginn.