NGC 925
NGC 925 er bjálkaþyrilvetrarbraut í um 45 milljóna ljósára fjarlægð frá jörðinni í stjörnumerkinu Þríhyrningnum.
| Tegund: | Bjálkaþyrilvetrarbraut |
| Stjörnulengd: |
02klst 27mín 16,9s |
| Stjörnubreidd: |
+33° 34′ 45" |
| Fjarlægð: |
45 milljón ljósár |
| Sýndarbirtustig: |
+10,7 |
| Stjörnumerki: | Þríhyrningurinn |
| Önnur skráarnöfn: |
Ensk-þýski stjörnufræðingurinn William Herschel uppgötvaði vetrarbrautina þann 13. september árið 1784.
Vetrarbrautin er dauf en sést best í gegnum stóra áhugamannasjónauka.
