Norðurljósaspá
Rauntímagögn og aðrar upplýsingar sem segja til um líkur á norðurljósum í kvöld og næstu daga.
Rauntímagögn og aðrar upplýsingar sem segja til um líkur á norðurljósum í kvöld og næstu daga.
Kp-gildið segir til um styrk segultruflana af völdum sólvinds, frá 0-9. Segulstormar hefjast við Kp 5. Norðurljós sjást þótt Kp-gildið sé lágt (1-3) en virknin er meiri því hærra sem gildið er. Hvað þýðir Kp-gildið?
Kp-gildið núna:
Spáin næstu 7 daga
Dags. | Kp-gildi | Virkni |
---|
Líkur á lítilsháttar segulstormum 28-30. mars þegar Jörðin fer innan í sólvind úr sömu kórónugeil og olli norðurljósum í byrjun marsmánaðar, eins og sjá má undir Segulfar síðustu mánaða.
Líkanið sýnir sólvind sem streymir frá sólinni samhliða 27 daga snúningi hennar. Jörðin er guli punkturinn.
Taflan sýnir segultruflanir seinustu mánuði samhliða 27 daga snúningi sólar, mældar í segulmælingastöðinni í Leirvogi. Segultruflunum fylgja norðurljós. Hver punktur sýnir Kp-gildið þann dag. Taflan gefur hugmynd um hvenær norðurljósa er að vænta, jafnvel meira en mánuð fram í tímann. Hvað er 27 daga endurtekningin?.
- Hleður segulfar gögnum -
Mælingar síðastliðins sólarhrings í Leirvogi. Sýndir eru þrír þættir; lóðréttur styrkur sviðsins (Z), láréttur styrkur (H), og misvísun áttavitastefnu (D).
Kp-gildi í segulmælingastöðinni í Leirvogi undanfarna viku. Mæligildin eru gefin á þriggja stunda fresti.
Myndin sýnir ljóshvolf sólarinnar.
Í dag eru litlir blettir á sólinni sem geta valdið veikum C-sólblossum og litlum kórónuskvettum.